29/10/2026
Það eru endalausir litamöguleikar og getur verið yfirþyrmandi en samt svo gaman að finna réttan lit. Veggir sem fá birtu úr norðri gera litinn öðruvísi en þegar birtan skín inn um glugga úr suðri. Þess vegna mæli ég með hlýjum litum í rými sem snúa í norður en má leyfa sér kaldari liti í suður eins og bláan, hvítan eða gráan.