Hornsteinar arkitektar

Call Directions Website Contact the business

Hornsteinar arkitektar Ingólfsstræti 5, 101 Reykjavík

21/08/2026
Heimsóknartími á nNýja Landsspítalanum 08.05.2026, Hönnunarmars
09/05/2026

Heimsóknartími á nNýja Landsspítalanum 08.05.2026, Hönnunarmars

Heimsóknartími á Nýja Landsspítalanum 08.05.2026 - Hönnunarmars
09/05/2026

Heimsóknartími á Nýja Landsspítalanum 08.05.2026 - Hönnunarmars

Nýlega var lokið við að endurgera útveggi Vesturhúss Orkuveitu Reykjavíkur. Gerðar voru róttækar breytingar á útliti byg...
19/01/2024

Nýlega var lokið við að endurgera útveggi Vesturhúss Orkuveitu Reykjavíkur. Gerðar voru róttækar breytingar á útliti byggingarinnar og það klætt að utan með verksmiðjuframleiddum útveggjaeiningum. Nýtt Vesturhús hefur litið dagsins ljós.

Nýr útveggur Vesturhúss Orkuveitu Reykjavíkur séð innanfrá. Flettið fyrir eftir  fyrir breytingar.
19/01/2024

Nýr útveggur Vesturhúss Orkuveitu Reykjavíkur séð innanfrá. Flettið fyrir eftir fyrir breytingar.

Hornsteinar hafa í samstarfi við hollensku arkitektastofuna HofmanDujardin endurhannað hvolfrými Orkuveita Reykjavíkur, ...
19/01/2024

Hornsteinar hafa í samstarfi við hollensku arkitektastofuna HofmanDujardin endurhannað hvolfrými Orkuveita Reykjavíkur, sem mun nú tengja saman Vestur- og Austurhús í enn ríkari mæli en áður. Það mun því taka talsverðum breytingum í náinni framtíð en markmiðið er að skapa lifandi rými sem býður uppá aðstöðu til óformlegra funda og frekari samskipta starfsfólks milli svæða. Nýr stigi tengir nýja millipalla sem gæddir verða gróðurkerjum, fjölbreyttum setsvæðum og kaffiaðstöðu.

HORNSTEINAR þakka , dómnefnd og öllum þeim sem komu að þessum glæsilega viðburði.Einnig ber að þakka fyrir þær einstöku ...
10/11/2023

HORNSTEINAR þakka , dómnefnd og öllum þeim sem komu að þessum glæsilega viðburði.

Einnig ber að þakka fyrir þær einstöku viðtökur sem Edda - Hús íslenskunnar hefur fengið frá því að það var vígt þann 19.apríl síðastliðinn.

TAKK.

10/11/2023

Edda, hús íslenskunnar er Staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2023

Edda, hús íslenskunnar eftir Hornsteina arkitekta er sigurvegari í flokknum Staður á Hönnunarverðlaunum Íslands 2023 fyrir einkennandi og áhrifamikil bygging sem sameinar varðveislu og aðgengi almennings að íslenskum menningarverðmætum til framtíðar.

Rökstuðningur dómnefndar:
Edda, nýtt hús íslenskunnar, er einkennandi og áhrifamikil bygging. Vandað er til verka af fagmennsku, listfengi og hugað að hverju smáatriði að innan sem utan. Sporöskjulaga formið og einstök áferð hið ytra gefur til kynna dýrmætt innihald. Byggingin stendur í grunnri spegiltjörn og að utan er hún klædd koparhjúp með stílfærðum afritum texta úr handritum, sem í senn skreytir veggina og vekur forvitni um það sem býr innan þeirra. Edda er bjart og opið hús þar sem fallegir inngarðar gefa innri rýmum andrúm og birtu.

Edda skapar alveg nýja umgjörð um íslenskan þjóðararf, byggingin myndar sterkt kennileiti sem fellur vel að umhverfi. Vinnuumhverfi innanhúss er vel útfært, bjart, vistvænt og þjónar fjölþættri starfsemi. Hornsteinum arkitektum hefur tekist að skapa einkennandi og áhrifamikla byggingu sem hæfir viðfangsefninu í formi og haganleik.

Edda er lykilbygging sem geymir handrit Íslendinga, merkustu menningarverðmæti þjóðarinnar. Í húsinu er starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands sameinuð ásamt því að varðveisla og aðgengi almennings að íslenskum menningarverðmætum er tryggð til langrar framtíðar.

Address

Ingólfsstræti 5
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hornsteinar arkitektar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hornsteinar arkitektar:

Shortcuts

Sponsored

Share