26/10/2026
Mikilvægum áfanga var nýlega náð á Grundartanga þegar rannsóknarborun lauk sem gæti varpað ljósi á nýja möguleika fyrir íslenska stóriðju til að draga úr losun með varanlegri geymslu CO₂. 🙌
Borholan náði 1.504 metra dýpi og nú taka við mælingar og rannsóknir sem munu veita mikilvægar upplýsingar um hvort jarðlög á svæðinu henti til varanlegrar geymslu CO₂ frá iðnaði.
Grundartangi er eitt stærsta iðnaðarsvæði landsins og niðurstöður rannsóknarinnar geta orðið mikilvægt framlag til áframhaldandi þróunar lausna sem styðja við samdrátt í losun og styrkja samkeppnishæfni íslensks iðnaðar til framtíðar.
Verkefnið er unnið í samstarfi Carbfix, Elkem, Norðuráls og Þróunarfélags Grundartanga, með stuðningi Orku- og loftslagssjóðs, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Jóhann Páll Jóhannsson.
Við hlökkum til að deila frekari niðurstöðum þegar þær liggja fyrir.
Nánar: https://www.carbfix.is/newsmedia/carbfix-rannsakar-moguleika-a-varanlegri-geymslu-c
RÚV: https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-26-kanna-moguleika-a-ad-geyma-koldioxid-a-grundartanga-490925
Myndir: Ven Eta