25/08/2026
⚡️ Stolt af verkefni sem skiptir máli
Við hjá Bláorku erum virkilega ánægð með að hafa unnið með Mílu að nýju orkukerfi fyrir fjarskiptastaðinn á Slórfelli.
Staðurinn hafði áður verið keyrður á dísilrafstöð allan sólarhringinn, allt árið. Með 60 kWh rafgeymakerfi, 11 kW sólarsellum og 800 W vindmyllu hefur nú tekist að draga verulega úr keyrslu rafstöðvarinnar og áætlað er að olíunotkun fari úr um 12.000 lítrum á ári niður í 6.000 lítra.
Verkefnið sýnir vel hvað hægt er að gera með réttri blöndu af rafgeymum, sólarorku, vindorku og sjálfvirkri varaaflsstýringu – jafnvel á afskekktum stöðum þar sem ekkert dreifikerfi er til staðar.
Þetta er nákvæmlega sú tegund verkefna sem við hjá Bláorku viljum taka þátt í:
minni eldsneytisnotkun, lægri rekstrarkostnaður og hreinni orka – án þess að fórna rekstraröryggi.
Við þökkum Mílu fyrir frábært samstarf og traustið. 💙⚡️
Míla hefur lokið mikilvægu skrefi í orkuskiptum fjarskiptainnviða landsins með uppsetningu rafgeymakerfis, sólarsella og vindmyllu á fjarskiptastaðnum Slórfelli á Möðrudalsöræfum. Slórfell var síðasti fjarskiptastaður fyrirtækisins þar sem dísilrafstöð hafði verið í samfel...