Sigur-garðar ehf.

  • Home
  • Sigur-garðar ehf.
Call Directions Contact the business

Sigur-garðar ehf. Sigur-garðar ehf. Garðaþjónusta - Jarðvinna - Umhirða - Frágangur Sigur-garðar sf. Fyritækið skartar góðum vélaflota og hefur verkfæri til flestra verka.

er Skrúðgarðyrkjufyrirtæki sem var stofnað árið 1990 og hefur annast alla almenna garðaþjónustu í liðlega 23 ár. Þó svo að fyrirtækið hafi verið stofnað 1990 hefur eigandi og stofnandi þess unnið við skrúðgarðyrkju í rúmlega 30 ár. Fyrirtækið er staðsett að Laufskálum II í Borgarbyggð en hefur þó teygt verkefnahring sinn um Suður og Norðurland. Aftur á móti hefur garðyrkja verið í forgangi á Laufskálum síðan árið 1945 þegar Aðalsteinn Símonarson frá Vatnskoti í Þingvallasveit og kona hanns Sigurbjörg Pálsdóttir stofna lögbýlið Laufskála byggja þar upp garðyrkjustöð og síðar trjáplöntu rækt. Staðurinn er einnig þekktur fyrir að hafa verið með stærstu framleiðslu og sölu á kaktusum og hitabeltisplöntum á Íslandi um árabil og á tímabili stærsta bananaræktun landsins.

Það er svo eftir 1970 sem Aðalseinn fer að fást við garðaþjónustu og ýmsa vinnu því tengdu út um allan Borgarfjörð. Á þessum árum plantaði Aðalsteinn út trjáplöntum víðsvegar um Borgarfjörðinn sem fjölskyldan á Laufskálum viðheldur enn. Kári Aðalsteinsson tekur svo við garðaþjónustunni 1984 og síðar garðyrkjustöðinni og rekur hana ásamt og garðaþjónustuna fram að árinu 1990 þegar Sindri Arnfjörð Sigurgarðarson starfsmaður hjá Kára tekur við garðaþjónustunni og stofnar fyrirtækið Sigur-garðar. Sigur- garðar kaupir síðan Gróðrarstöðinna Laufskálum 1997 og rekur hana til ársins 2003 er hann snýr sér að fullum krafti í skrúðgarðyrkjuna. Yfir þau 23 ár sem liðið hafa hefur fyrirtækið blómstrað og er að meðaltali með 4-6 starfsmenn auk eiganda yfir sumartímann. Frá árinu 1945 hafa þrjár kynslóðir fólks frá Laufskálum annast garðyrkjustörf þar og sú fjórða á leiðinni. Ef þú villt reynsluríkann garðyrkjumann í garðinn þá er Sigur-garðar sf. klárlega með þeim reynsluríkustu og sanngjörnustu í faginu.

10/10/2026
Viðburðarríkt að vanda hjá okkur og gleðin við völdGóða helgi kæru vinir
09/10/2026

Viðburðarríkt að vanda hjá okkur og gleðin við völd

Góða helgi kæru vinir

08/10/2026
Hvað eiga ærslabelgur, vegagerð, hitaveitubilanir, steypuvinna, þökulögn og hellulagnir sameiginlegt...?Þetta er allt ve...
02/10/2026

Hvað eiga ærslabelgur, vegagerð, hitaveitubilanir, steypuvinna, þökulögn og hellulagnir sameiginlegt...?

Þetta er allt verkefni sem okkar frábæra starfsfólk framkvæmdi í þessari viku ásamt öllum hinum fíneseríngunum sem við framkvæmdum

Þegar hausta tekur breytist takturinn í samfélaginu þegar rökkva tekur fyrr á daginn. Förum varlega og munum að njóta.

Góða helgi kæru vinir

Nú þegar haustið er farið að láta finna fyrir sér með tilheyrandi lægðargangi hendist okkar besta fólk í verkefnin og ge...
25/09/2026

Nú þegar haustið er farið að láta finna fyrir sér með tilheyrandi lægðargangi hendist okkar besta fólk í verkefnin og gerir umhverfið fallegra.

Brot af því sem þessi vika hafði uppá að bjóða hjá okkar frábæra fólki.

Njótið helgarinnar kæru vinir

Yndisleg vika og allir heilir heimFjölbreytt verkefnaflóran og verkefnin mörg hver krefjandi sem okkar besta fólk sinnir...
18/09/2026

Yndisleg vika og allir heilir heim

Fjölbreytt verkefnaflóran og verkefnin mörg hver krefjandi sem okkar besta fólk sinnir af yfirvegun og alúð.

Eigið´ana góða elsku vinir

Address

Sólbakki 28c

310

Telephone

+3548927663

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sigur-garðar ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sigur-garðar ehf.:

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed contractor?

Share