04/09/2026
Carl Jóhann, eigandi Málningarvinnu Carls er staddur í Stokkhólmi um þessar mundir þar sem hann tók þátt í þingi Málarameistarafélaga Norðurlandanna sem stjórnarmaður Málarameistarafélagsins á Íslandi🇸🇪
Á þinginu komu saman málarameistarar og fulltrúar frá Norðurlöndunum til að ræða stöðu og framtíð greinarinnar, deila reynslu og hugmyndum og efla samstarfið á milli landanna. Á dagskránni voru meðal annars erindi og kynningar frá hverju landi, umræður um málefni greinarinnar og heimsóknir.
Samhliða þinginu fór Norðurlandamótið í málaraiðn fram, þar sem Guðjón Ívar okkar keppti fyrir Íslands hönd 🇮🇸 Hann stóð sig frábærlega og erum við virkilega stolt af honum🧡 Í gær lauk svo bæði mótinu og þinginu með verðlaunaafhendingu og lokahófi, eftir viðburðaríka daga í Stokkhólmi.
Okkur finnst mikilvægt að taka þátt í svona samstarfi og vera í góðum tengslum við aðra innan greinarinnar. Það gefur okkur tækifæri til að læra af öðrum, fá nýjar hugmyndir og fylgjast með þróuninni í faginu. Það eflir bæði okkar eigin starfsemi og málaraiðnaðinn í heild sinni.