BB Hús, Vélar & Garðar ehf.

BB Hús, Vélar & Garðar ehf. Alhliða smíðaþjónusta
Öll jarðvinna og lóðafrágangur
Snjóruðningur og hálkuvarnir

Í Seljahverfi er gott að búa og margir möguleikar á að breyta og bæta. Alltaf næg pláss til þess að útbúa auka bílastæði...
23/02/2026

Í Seljahverfi er gott að búa og margir möguleikar á að breyta og bæta.

Alltaf næg pláss til þess að útbúa auka bílastæði :).

Í byrjun sumars 2025 var óskað eftir því hvort við gætum tekið að okkur að útbúa c.a. 50m2 bílastæði í Flúðaselinu og notast við Ecorastic grindur. Auðvitað EKKERT MÁL.

Hver grind þekur 1m2 og því auðvelt að leggja þær þegar öll undirvinna er búin. Notast var við perlusteina til að fylla upp í grindurnar og svo þjappað létt yfir. Málmsmiðja Þorgríms sem er þjónustuaðili Ecorastic grindanna en Steypustöðin er með perlusteinana.

Fljót unnið verk og auðveld aðkoma. Ótrúlega skemmtileg lausn og endingargóð.

Ef þú hefur áhuga á að útbúa slíkt svæði þá eru einnig til margar útfærslur. Hafðu samband og við aðstoðum þig við valið og framkvæmdina.

Gsm 8951818 eða með vefpósti [email protected]

23/02/2026
Í júní byrjun unnum við verk við Þjóðhildarstíg í Grafarvogi. Verkið unnum við sem undirverktakar hjá Garðasmíði ehf.  H...
23/02/2026

Í júní byrjun unnum við verk við Þjóðhildarstíg í Grafarvogi.

Verkið unnum við sem undirverktakar hjá Garðasmíði ehf. Hjá Garðasmíði byrjuðum við feðgar að vinna við jarðvegsvinnu, hellulagningar og pallasmíði. Lögðum þar með grunninn að BB Hús, Vélar & Garðar ehf. Ótrúlega góður og lærdómsfullur tími fyrir okkur báða og eigum við þeim margt að þakka.

Þegar Garðasmíði leitaði til okkar að gera grenndargámastöðina vorum við auðvitað til í að slást í hópinn. Verkið var unnið fyrir Reykjavíkurborg

Garðasmíði sá um jarðvegsskipti og tyrfingu en við sáum um hellulögn og girðingavinnu.

Hér má sjá myndir af verkinu.

Félagsheimili Íþróttafélags Reykjavíkur var endurnýjað að hluta á síðasta ári. Í miðjum endurbótum þá gaf sig vatnslögn ...
23/02/2026

Félagsheimili Íþróttafélags Reykjavíkur var endurnýjað að hluta á síðasta ári. Í miðjum endurbótum þá gaf sig vatnslögn og tryggingarfélagið lagfærði stóran hluta tjónsins.

En aðalstjórn ÍR leitaði til okkar til að breyta eldhúsinu og setja upp nýja þvottaaðstöðu fyrir veislusalinn, ásamt því að setja upp nýja eldhúsinnréttingu og barborð.

Þurftum að endurbyggja hluta af loftinu og veggjum. Skiptum um raflagnir og settum innfelda lýsingu í loftið. Lagfærðum lagnaleiðir fyrir eldhúsvaska og nýjar lagnir á bakvið innréttingarnar. Sett var ein ný hurð í hurðagat og gengið frá öllum listum. Þegar verki lauk var búið að tengja allt vatn, rafmagn og standsetja öll tæki fyrir komandi útleigu á salnum. Tókst ótrúlega vel og aðstaðan allt önnur.

Brúðhjónin sem voru búin að leigja salinn 20 dögum síðar voru stressuð yfir því að eldhúsið yrði ekki klárt.

Það voru óþarfa áhyggjur en eldhúsið var klárað tímanlega og brúðkaupsveislan fór fram á réttum tíma.

Notuðum fermasell plötur í veggina og í loft. Rafmagn og lýsing var keypt í Ískraft, allt dimmanlegt og með snertirofum. Innréttingar og tæki frá Ikea og borðplötur frá Fanntófell.

Ef þú ert að hugleiða breyta eldhúsinu þínu eða einhverju öðru í húsinu! Hafðu þá samband við okkur!

BB Hús, Vélar & Garðar ehf.

Upplýsingar i sima 8951818 eða með vefpósti á [email protected]

Frá því að við keyptum BB Vélar ehf og breyttum nafninu í BB Hús, Vélar & Garðar ehf þá höfum við þjónustað Eignaumsjón ...
23/02/2026

Frá því að við keyptum BB Vélar ehf og breyttum nafninu í BB Hús, Vélar & Garðar ehf þá höfum við þjónustað Eignaumsjón ehf með ýmis verkefni.

Við þjónustum hús- og svæðisfélög fyrir þeirra hönd. Meðal þeirra eru Sundaboginn, Svæðisfélag Glæsibæjar, Svæðisfélag Mjóddarinnar, Heilsugæslan við Hallveigarstíg og mörg önnur.

Á vorin sinnum við klippingum og ýmsum vorverkum, ásamt því að sópa og þrífa svæðin ef þess gerist þörf.

Á sumrin sjáum við um ótrúlega margt, t.d. slátt, setja ný sumarblóm í beð, lagfæra malbik, kantsteina og mála bílastæði.

Á haustin sinnum við venjulega ýmsum tilfallandi verkum.

En veturnar sinnum við allri vetrarþjónustu sem þau óska eftir. Við snjóhreinsum, söltum og söndum í áskrift og fjarlægjum einnig snjóhauga ef þess gerist þörf.

Hér er saman safn af myndum frá ýmsum verkefnum sem við unnum fyrir þeirra hönd á síðasta ári.

Ef þig vantar verktaka sem getur tekið að sér flest öll verk innan eða utandyra fyrir þitt húsfélag þá getur þú hringt í síma 8951818 eða sent okkur vefpóst á [email protected]

Í Kópavogi lagfærðum við eina leiguíbúð í Áslandinu. Íbúðin var komin á þannig stað að það þurfti nauðsynlega að skipta ...
23/02/2026

Í Kópavogi lagfærðum við eina leiguíbúð í Áslandinu. Íbúðin var komin á þannig stað að það þurfti nauðsynlega að skipta um gólefni á allri íbúðinni. Og að auki lagfærðum við innbyggða skápa og settum upp nýja eldhús innréttingu. Því miður eigum við ekki margar góðar myndir frá framkvæmdunum, þar sem myndavélin í gamla símanum var orðin mjög léleg. En hér eru nokkrar.

Efni sem notast var við er frá Byko, Parka Parket, Einar Á, Ikea, Fagefni og Þ.Þorgrímsson.

Við nýttum okkur teikniforrit Ikea og settum inn allt það sem viðskiptavinurinn vildi sjá í nýja eldhúsinu. Nýttum plássið eins vel og við gátum.

Allur frágangur til fyrirmyndar, allt tengt og gert klárt fyrir nýja leigjendur.

Ef þú ert að leita að verktaka til að taka íbúðina þína í gegn þá gætum við mögulega aðstoðað.

Nánari upplýsingar í síma 8951818 eða með vefpósti á [email protected]

Í Lækjarhjalla í Kópavogi var rifinn niður eldri garðskáli sem var kominn til ára sinna og einnig var bílaplan stækkað. ...
23/02/2026

Í Lækjarhjalla í Kópavogi var rifinn niður eldri garðskáli sem var kominn til ára sinna og einnig var bílaplan stækkað.

Í staðinn var settur nýr garðskáli og með tengingu við opna pergólu. Útliti skálans var að hluta til breytt en einungis gæðaefni var notað við smíði hans.
Gluggarnir komu frá Gluggagerðinni, timbur frá Byko, flasningar frá Blikkform, gler frá Íspan, gróðurhúsaglerið og festingar frá Signa.

Hér fyrir neðan má sjá myndir fyrir og eftir.

Mun meira skjól hefur myndast með þessari framkvæmd og gefur hún eigendum mun fleirri möguleika til að eiga ánægjulegar stundir á pallinum í framtiðinni.

Ef þú ert í gróðurskála eða pergólu hugleiðingum þá getið þið haft samband við okkur.

Gsm 8951818 eða með vefpóst á [email protected]

23/02/2026

Við hjá BB Hús, V&G ehf höfum ekki verið nægjanlega duglegir við að pósta myndum eða uppfæra síðuna síðustu mánuði vegna mikillra anna.

Við ætlum að bæta úr því! Þar sem við höfum getað tekið betri myndir og tæknimálin eru komin í betri farveg.

Á næstu dögum ætlum við að setja inn nokkrar færslur af þeim verkum sem við unnum á síðastliðið ár og fylgja þeim svo eftir með nýjum færslum af þeim verkum sem við höfum verið að vinna á þessu ári.

Ef þig vantar traustan verktaka til að aðstoða þig við allt milli lóðamarka og upp í kjöl þá erum við rétti verktakinn fyrir þig. Jafn fyrir húsfélög eða einstaklinga.

Nánari upplýsingar í síma 8951818 og [email protected]

Address

Reykjavík

Telephone

+3548951818

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when BB Hús, Vélar & Garðar ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to BB Hús, Vélar & Garðar ehf.:

Shortcuts

Featured

Share

Category