EMAR

Call Directions Contact the business

EMAR EMAR, stofnað 2006, selur hágæða stiga, einingahús, glugga, hurðir og ýmislegt fleira. Sinnum einnig allri almennri smíðavinnu.

Í dag eru tuttugu ár liðin frá því að ég stofnaði EMAR ehf.Frá stofnun og fram til dagsins í dag hef ég unnið með mörgum...
13/10/2026

Í dag eru tuttugu ár liðin frá því að ég stofnaði EMAR ehf.

Frá stofnun og fram til dagsins í dag hef ég unnið með mörgum framleiðendum og birgjum, flestum í Litháen og viðskiptavinir EMAR skipta hundruðum (hef ekki tölu á þeim).

Eins og lífið almennt, hefur þessi tími verið "allskonar", ég hef kynnst svo mörgum og eignast góða vini á þessu ferðalagi. Þar sem ég sjálfur er ekki nema sextugur, þá held ég auðvitað ótrauður áfram með hóflega bjartsýni að vopni til að stýra í gegnum þær þrengingar sem nú banka upp á í mínum bransa.

Takk fyrir samfylgdina, að treysta mér fyrir ykkar verkefnum, margir m.a.s. aftur og aftur :) Ykkur og öllum mínum erlendu birgjum og vinum er ég mjög þakklátur. Að ég tali nú ekki um þá sem ég hef keypt þjónustu af öll árin.
------------------------------------------------------
Today marks twenty years since I founded EMAR ehf.

Since the company’s inception, I have worked with numerous manufacturers and suppliers—mostly Lithuanian—and EMAR’s client base numbers in the hundreds (I’ve long since lost the count).

Like life in general, this journey has been a varied experience; I have met so many people and made good friends along the way. As I am only sixty years old, I am pressing ahead undaunted, armed with a measure of optimism as I navigate the challenges "my" industry is currently facing.

Thank you for being a part of this journey and for entrusting me with your projects—many of you more than once and more than twice :) For all of you and my partners and friends abroad I'm very thankful.

Á Valsreitnum eru nokkur hundruð gluggar og eitthvað af hurðum frá EMAR. Timbur-ál frá HCTC í Litháen og Álhurðir frá Al...
20/09/2026

Á Valsreitnum eru nokkur hundruð gluggar og eitthvað af hurðum frá EMAR. Timbur-ál frá HCTC í Litháen og Álhurðir frá Aliuminatas UAB, einnig í Litháen. Það er gott og góðs viti þegar traustir aðilar treysta manni, aftur og aftur. Það er jafnvel til eftirbreytni fyrir aðra :) Eggert Marinósson

Þessa dagana erum við að reisa einingahús/hæð ofan á eldra einbýli í Kópavogi. Á meðan gamla efri hæðin var rifin og hús...
06/08/2026

Þessa dagana erum við að reisa einingahús/hæð ofan á eldra einbýli í Kópavogi. Á meðan gamla efri hæðin var rifin og húsið undirbúið fyrir einingar var tjaldað yfir húsið, tjaldið síðan tekið niður þegar við byrjuðum að hífa.

Fyrsta veggeinining var hífð á föstudagsmorgni og síðasta þakeiningin um kvöldmat á sunnudegi.

Svo tók við allur annar frágangur, uppsetning á svölum o.s.frv.

Þetta verk er unnið í samvinnu við Stadus Uab í Litháen, sem framleiða einingarnar, og menn á þeirra vegum sjá um vinnuna. Þeir klára sitt fljótlega og koma sér þá heim aftur.

Þá verður farið í að klæða þakið og undirbúa klæðningu útveggja og sitthvað fleira sem ég er ekkert að telja upp núna.
Eggert Marinósson

Stálstigi frá Prefabus í Litháen risinn á Raufarhöfn. Menn frá EMAR sáu um mælingar, undirstöður og reisningu með góðri ...
24/06/2026

Stálstigi frá Prefabus í Litháen risinn á Raufarhöfn. Menn frá EMAR sáu um mælingar, undirstöður og reisningu með góðri hjálp heimamanna, sem er þakkarvert.

Það er gaman, eða áhugavert, að geta skoðað stigann sinn áður en hann verður að uppsettum og frágengnum stiga heima hjá ...
17/03/2026

Það er gaman, eða áhugavert, að geta skoðað stigann sinn áður en hann verður að uppsettum og frágengnum stiga heima hjá þér. Ef innleggið virkar þá á það að sýna 3D líkan af stiga sem verður settur upp í gömlu húsi við Baldursgötu í Reykjavík. EMAR Eggert Marinósson .

Supported devices: iPhone 6S+ & iPad 5+ on iOS 12+ and Android 8.0+ with ARCore 1.9 support Open this page with such a device to experience AR.

Vantar ykkur glugga og/eða hurðir? En stiga? Inni eða úti. Hafið endilega samband í gegnum emar@emar.is
13/02/2026

Vantar ykkur glugga og/eða hurðir? En stiga? Inni eða úti. Hafið endilega samband í gegnum [email protected]

Address

Garðsstaðir 40
Reykjavík
112

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

+3548985005

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when EMAR posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to EMAR:

Shortcuts

Sponsored

Share