ÞG Verk

ÞG Verk ÞG Verk var stofnað árið 1998 af Þorvaldi H Gissurarsyni sem er enn þann dag í dag forstjóri og eigandi félagsins.

Félagið er byggt upp á traustum grunni og hefur staðið af sér öll áföll í íslensku efnhagslífi sem og íslenskum byggingariðnaði og starfar enn á upprunalegri kennitölu. Markmið félagsins hefur ávallt verið að skila góðu verki til sinna viðskiptavina á íbúðamarkaði sem og útboðsmarkaði, að stunda traust og örugg viðskipti og uppfylla væntingar viðskiptavina.

Á annað þúsund fjölskyldna búa í dag í húsnæði frá ÞG Verk og u.þ.b 700 íbúðir eru fyrirhugaðar í byggingu á næstu árum. Gæðakerfi ÞG Verk verndar hagsmuni kaupenda en ávallt er gerð sameiginleg úttekt á hverri fasteign fyrir afhendingu. Fyrirtækið hefur í gegnum tíðina byggt atvinnuhúsnæði sem hýsir margvíslega starfsemi.

ÞG Verk hefur yfirgripsmikla reynslu af störfum á útboðsmarkaði og meðal verkefna eru hátæknisetur lyfjafyrirtækisins Alvogen, höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur, stærsta prentsmiðja landsins fyrir Morgunblaðið og virkjanir á Hellisheiði og Nesjavöllum. Félagið hefur áunnið sér traust opinberra aðila og stórfyrirtækja með skipulegu vinnulagi, skilum á réttum tíma, vönduðu verki og öruggum viðskiptum. Hjá fyrirtækinu er starfrækt gæðaráð og starfandi gæðastjóri. Í gegnum allt byggingarferlið eru gerðar reglulegar úttektir á öllum verkþáttum.

Í dag er ÞG Verk í sókn, bæði ef litið er til eigin framkvæmda á íbúðar og atvinnuhúsnæðimarkaði og verkefna á útboðsmarkaði. Lykillinn að farsælum rekstri er afburða starfsfólk og er fyrirtækið stolt af þeim trausta og hæfa hópi fólks sem starfar fyrir félagið í dag. Fyrirtækið leggur áherslu á góða starfsmanna aðstöðu og aðbúnað til að tryggja öryggi og starfsmannaánægju.

ÞG Verk er sterkt félag sem skilar góðu verki og faglegum vinnubrögðum. Allt frá stofnun hefur það verið meginmarkið félagssins að skila góðu verki, stunda örugg viðskipti og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini.

Þorvaldur Gissurarson
Forstjóri ÞG Verk

Fyrir um ári síðan tók ÞG Verk í fyrsta sinn þátt í Erasmus+ sem er verkefni sem Iðan Fræðslusetur heldur utan. Við tóku...
22/09/2026

Fyrir um ári síðan tók ÞG Verk í fyrsta sinn þátt í Erasmus+ sem er verkefni sem Iðan Fræðslusetur heldur utan. Við tókum á móti þremur nýlega útskrifuðum smiðum frá Frakklandi og störfuðu þeir við uppbyggingu á Nýja Landspítalanum við Hringbraut í rúma tvo mánuði.

Nú í september tökum við aftur þátt og bjóðum tvo nýlega útskrifaða smiði frá Frakklandi til starfa, þá Clément og Titouan sem munu vera hjá okkur fram í desember við uppbyggingu á Nýja Landspítalanum við Hringbraut.

Í þeirra námi í Frakklandi er mesta áherslan lögð á vinnu við tréverk, en hjá okkur fá þeir að takast á við allskonar verkefni bæði í innanhúss og utanhúss frágangi.

Við hjá ÞG Verk erum afar ánægð með samstarfið við Iðuna og Ersmus+ og hlökkum til að sýna þeim Clément og Titouan hvernig byggingarframkvæmdir hjá okkur fara fram.

https://tgverk.is/2026/09/22/thg-verk-tekur-thatt-i-erasmus/

Ölfusárbrú – Stálbitar fluttir til landsinsUm helmingur af stálbitum sem verða notaðir í burðargrind nýju Ölfusárbrúar k...
28/04/2026

Ölfusárbrú – Stálbitar fluttir til landsins

Um helmingur af stálbitum sem verða notaðir í burðargrind nýju Ölfusárbrúar komu til landsins um páskana. Allir bitarnir eru komnir á verkstað og hafin er vinna við að stilla þeim saman. Bitarnir eru tveggja metra háir og um 20 metra langir og hver biti vegur um 30 – 40 tonn. Til þess að flytja stálbitana á verkstað þurfti stærstu krana landsins til þess að hífa þá upp úr skipinu og fóru síðan flutningarbílar með þá í lögreglufylgd á verkstað.

Hér má sjá Video frá Vegagerðinni um stálbitana:
youtube.com/watch?v=-1Fq-5YqjLI&source_ve_path=MjM4NTE&embeds_referring_euri=https%3A%2F%2Ftgverk.is%2F

Staða framkvæmda er sú að búið er að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og unnið við uppslátt stöpla ofan á þær. Í Laugardælaeyju er lokið við fyllingu og steypu þrifalags og unnið við uppslátt og járnbendingu fyrir undirstöðu turnsins sem þar mun rísa. Gatnagerð er langt komin og búið er að steypa upp brú og ný mislæg gatnamót við Laugdælaveg sem mun tengjast við Þjóðveg 1. Verkið hefur gengið vel og allir verkþættir eru samkvæmt áætlun.

https://tgverk.is/2026/04/24/olfusarbru-stalbitar-fluttir-til-landsins/

Address

Lágmúli 7
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:30
Tuesday 08:00 - 16:30
Wednesday 08:00 - 16:30
Thursday 08:00 - 16:30
Friday 08:00 - 16:30

Telephone

+3545348400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ÞG Verk posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to ÞG Verk:

Shortcuts

Featured

Share

Category