Mannvirkjaviðhald Íslands ehf

Mannvirkjaviðhald Íslands ehf Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Mannvirkjaviðhald Íslands ehf, Masonry contractor, Reykjavík.

07/08/2026
07/08/2026

Efni: Formleg lokakrafa um skil á eignum og stöðvun á notkun myndefnis
Fjalar Mál og múrverk ehf
Ég geri hér með formlega og tafarlausa kröfu um að öllum eigum mínum og búnaði verði skilað án frekari tafa.
Á myndum sem ég hef undir höndum sést starfsmaður hjá þér í vinnugalla merktum Rúnar múrari. Sá galli er eign mín og hefur ekki verið afhentur þér eða starfsmönnum þínum með mínu leyfi.
Þetta á ekki eingöngu við um vinnugallann. Ég krefst jafnframt að öllum verkfærum, tækjum, tröppum, vinnubúnaði og öðrum lausamunum í minni eigu sem þú eða starfsmenn þínir hafið undir höndum verði skilað tafarlaust.
Þú veist hvaða búnað og eignir um ræðir og ég mun ekki sætta mig við að eigur mínar séu áfram notaðar í þinni starfsemi.
Að auki krefst ég þess að þú hættir tafarlaust að nota ljósmyndir af verkum sem ég eða fyrirtæki mitt höfum unnið til að auglýsa þína starfsemi eða skapa þá ímynd að um þín verk sé að ræða.
Þú hefur ekki heimild frá mér til að nota slíkar myndir þér eða fyrirtæki þínu til framdráttar. Ég krefst þess því að allar slíkar myndir verði fjarlægðar tafarlaust af Facebook, vefsíðum, samfélagsmiðlum, auglýsingum og öðru kynningar- eða markaðsefni sem tengist starfsemi þinni.
Ég geri því kröfu um eftirfarandi:
Öllum vinnufatnaði merktum Rúnar múrari verði skilað tafarlaust.
Öllum verkfærum og tækjum í minni eigu verði skilað.
Öllum tröppum, vinnubúnaði og öðrum lausamunum í minni eigu verði skilað.
Öll notkun á eignum mínum í þinni starfsemi verði stöðvuð.
Öll notkun mynda af verkum mínum þér eða fyrirtæki þínu til framdráttar verði stöðvuð.
Allar slíkar myndir verði fjarlægðar af samfélagsmiðlum, vefsíðum og auglýsingum.
Þú staðfestir skriflega hvenær og hvar allar eignir mínar verða afhentar.
Ég hef gögn og myndir sem ég tel sýna að eigur mínar og verk séu notuð í tengslum við starfsemi þína. Ég mun varðveita skjáskot, ljósmyndir og önnur gögn sem varða málið.
Verði eignunum ekki skilað og notkun myndefnisins ekki stöðvuð mun ég taka málið í formlegan farveg og leita réttar míns, meðal annars varðandi endurheimt eigna, mögulega óheimila notkun þeirra og eftir atvikum fjárhagslegt tjón.
Ég ætlast til þess að þessu verði lokið án undanbragða og án frekari tafa.
Þetta er formleg lokakrafa áður en frekari aðgerðir verða teknar.
Virðingarfyllst,
Rúnar Eldjárn Jóhannsson

mannvirkjavidhald@gmail.comÞegar ég var einungis 10 ára fékk ég stjórnlausan áhuga á steypu og öllu sem henni tengist. É...
02/05/2026

[email protected]

Þegar ég var einungis 10 ára fékk ég stjórnlausan áhuga á steypu og öllu sem henni tengist. Ég byrjaði á því að negla saman mót, fékk smá steypu í hjólbörur hjá Steypustöð Breiðholts og steypti í mótin mín. Að námi loknu hef ég unnið við viðhaldi steyptra mannvirkja í nær 40 ár og var mitt fyrsta stóra verk viðhald Kópavogshælis undir stjórn Línuhönnunar.
Ég hef sömuleiðis tekið fjölda verka í viðhald og málningu gegnum verkfræðistofur, séð um viðhald og málningu á nánast allri Hamraborginni og vann mikið að viðhaldi eigna Fiskveiðisjóðs. Þegar ÍST staðallinn var mótaður veitti ég mikla aðstoð við verklýsingar og margir verkfræðingar og múrarar hafa fengið innsýn í viðhald steyptra mannvirkja hjá mér.

17/04/2026

Masonry Contractor

Þegar ég var einungis 10 ára fékk ég stjórnlausan áhuga á steypu og öllu sem henni tengist. Ég byrjaði á því að negla sa...
17/04/2026

Þegar ég var einungis 10 ára fékk ég stjórnlausan áhuga á steypu og öllu sem henni tengist. Ég byrjaði á því að negla saman mót, fékk smá steypu í hjólbörur hjá Steypustöð Breiðholts og steypti í mótin mín. Að námi loknu hef ég unnið við viðhaldi steyptra mannvirkja í nær 40 ár og var mitt fyrsta stóra verk viðhald Kópavogshælis undir stjórn Línuhönnunar.
Ég hef sömuleiðis tekið fjölda verka í viðhald og málningu gegnum verkfræðistofur, séð um viðhald og málningu á nánast allri Hamraborginni og vann mikið að viðhaldi eigna Fiskveiðisjóðs. Þegar ÍST staðallinn var mótaður veitti ég mikla aðstoð við verklýsingar og margir verkfræðingar og múrarar hafa fengið innsýn í viðhald steyptra mannvirkja hjá mér.

Address

Reykjavík
112

Telephone

+3547743800

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mannvirkjaviðhald Íslands ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Mannvirkjaviðhald Íslands ehf:

Shortcuts

Featured

Share