Berg verktakar

Directions Website

Berg verktakar Jarðvinna, lagnir og ýmis mannvirki.

🎉 Framúrskarandi fyrirtæki 2026 🎉Við erum afar stolt af því að vera á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ári...
28/10/2026

🎉 Framúrskarandi fyrirtæki 2026 🎉

Við erum afar stolt af því að vera á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026, og það sjötta árið í röð.
Einungis 2,5% íslenskra fyrirtækja uppfylla skilyrðin.
Þetta hefði ekki verið mögulegt án frábærs starfsfólks, traustra viðskiptavina og öflugra samstarfsaðila.

27/10/2026

Frá því í sumar höfum við unnið að því að leggja 132kV jarðstreng frá tengivirki Landsnets við Þorlákshöfn í átt að tengivirki rétt austan við Hveragerði. Samtals eru þetta rúmir 21 km og eru verklok næsta haust.
Við erum að ljúka við kaflann frá Þorlákshöfn að Þrengslavegi, um 8 km. Skurðstæðið á þessum kafla var nánast allt í klöpp þannig að mikið efni kom upp sem við brutum og notuðum í slóðagerð.
Kapallinn er með því sverasta sem hefur verið lagt í jörðu, 2.000 kvaðröt. Hvert kefli er um 13 tonn og eru um 850 metrar á hverju kefli. Í þessum áfanga höfum við dregið út um 24 km eða um 28 kefli sem vigta samtals um 360 tonn.

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri sjötta árið í röð🎉
22/10/2026

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri sjötta árið í röð🎉

Fjörið heldur áfram í Vaðölduveri. Hér eru nokkrar myndir frá síðustu vikum.
11/10/2026

Fjörið heldur áfram í Vaðölduveri. Hér eru nokkrar myndir frá síðustu vikum.

Á síðustu vikum hefur mikið gengið á við tengivirki Landsnets í Hveragerði.Verið er að vinna við uppsetningu forsteyptra...
25/09/2026

Á síðustu vikum hefur mikið gengið á við tengivirki Landsnets í Hveragerði.
Verið er að vinna við uppsetningu forsteyptra eininga fyrir nýtt og við eldra tengivirki. Að auki er verið að vinna í uppsteypun spennuþróa ásamt allri jarð-, lagna- og strengjavinnu 👷⚡

12/06/2026

Unnið við lagnaskurð fyrir jarðstrengi við Vesturlandsveg✨

Berg Verktakar ehf hafa hlotið vottun á stjórnkerfi félagsins samkvæmt alþjóðlegu ISO stöðlunum 9001, 14001 og 45001. Vo...
24/04/2026

Berg Verktakar ehf hafa hlotið vottun á stjórnkerfi félagsins samkvæmt alþjóðlegu ISO stöðlunum 9001, 14001 og 45001. Vottunin nær yfir alla starfsemi félagsins og var framkvæmd af Versa Vottun í samstarfi við SBcert.

ISO 9001 snýr að gæðastjórnun og tryggir að verkferlar og þjónusta félagsins séu skilvirk og uppfylli væntingar viðskiptavina.

ISO 14001 tekur til umhverfismála og staðfestir vottunin að félagið vinni markvisst að því að lágmarka umhverfisáhrif.

ISO 45001 leggur áherslu á öryggi og heilbrigði starfsfólks.

Það er stór áfangi fyrir okkur að fá þessa vottun og staðfestingu á því að við vinnum eftir viðurkenndum stöðlum, Við leggjum ríka áherslu á gæði, umhverfisábyrgð og öryggi starfsfólks og þessi vottun endurspeglar þá stefnu.

https://bergverktakar.is/

LNS hóf í vikunni framkvæmdir á víkkun og dýpkun aðrennslisgangna Sultartangastöðvar.Við vorum aðeins að skottast í krin...
23/04/2026

LNS hóf í vikunni framkvæmdir á víkkun og dýpkun aðrennslisgangna Sultartangastöðvar.
Við vorum aðeins að skottast í kringum þá og látum nokkrar myndir fylgja hér með.

Address

Brúarfljóti 1
Mosfellsbær
270

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Berg verktakar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Sponsored

Share

Category