18/10/2026
Nú þegar snjalllásar eru fáanlegir á "öðruhverju götuhorni" er kannski rétt að koma með vinalega ábendingu varðandi þennan vöruflokk, við viljum jú öll fá mest fyrir peningana okkar, hvort sem það eru þægindi eða öryggi. ÁÐUR en þú kaupir snjalllásinn, skoðaðu þá vel hvort hann henti þinni hurð, þinni læsingu, þinni ætlaðri notkun og veðurfari, ef utandyra. Í mörgum tilfellum ertu að skilja íbúðina eftir nánast ólæsta með því að setja ranga gerð snjallláss á hana, í öðrum tilfellum kostar meira að breyta hurðinni til þess að hægt sé að nota lásinn sem þú keyptir heldur en að kaupa nýjan lás. Sumir vilja geta notað fingraför (mjög þægilegt og fljótvirkt) á meðan annað fólk vill bara PIN eða síma. Aðalmálið er að skoða allt vel í upphafi, ekki hlaupa á næsta tilboð og sitja uppi með afleiðingar, tilboðið er frábært fyrir eina hurð en ekkert nema fjárútlát fyrir næstu hurð. Uppsetningin skiptir líka mjög miklu máli, ef þú ert ekki viss fáðu þá hjálp.