Starfsemi Shelgasonar felst í rekstri á steinsmiðju til almennra steinsmiðjuverka. smíði flísa, borðplatna, legsteina, vatnsbretta og ýmiskonar sérsmíði. Einnig höfum við tekið að okkur viðhald gamalla steinverka, rekum legsteinaþjónustu og einnig verslun með náttúruflísar, ýmiskonar bón- og hreinsiefni og fylgihluti með legsteinum. Helstu steintegundir sem unnið er úr eru blágrýti, grágrýti, gabbró og líparít. Helstu erlendu steintegundirnar eru granít og marmari sem fluttar eru inn
meðal annars frá Miðjarðarhafslöndum, Norðurlöndum og Kína. Verslun okkar á Vesturvör 32b, hefur að geyma ríkulegt vöruúrval á borðplötum,
legsteinum, náttúruflísum, sólbekkjum, vatnsbrettum, bón- og hreinsivörum
ásamt fleiri vörutegundum.
Í verslun okkar færðu yfirlit yfir fjölbreytnina og ráðgjöf um nýtingu og meðferð efnissins.