22/09/2026
ALL Verk tekur að sér þrjú ný verkefni á Ísafirði
ALL Verk undirritaði í dag samninga um þrjú ný verkefni á Ísafirði. Framkvæmdir við þau eru fyrirhugaðar í lok september.
Verkefnin eru:
* Móttökuhús við Hrafnatanga
* Stækkun og lagfæringar á blóðrannsóknarstofu
* Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði – endurbætur á þaki
Við hjá ALL Verk erum afar þakklát fyrir það traust sem okkur hefur verið sýnt með þessum verkefnum. Það er okkur bæði heiður og ánægja að fá tækifæri til að leggja okkar af mörkum til uppbyggingar og nútímavæðingar mikilvægra innviða Ísafjarðarbæjar.
Við hlökkum til að hefja framkvæmdir, eiga gott samstarf við alla sem koma að verkefnunum og skila vönduðu verki sem bæjarfélagið getur verið stolt af.