Stikan Teiknistofa ehf - Bygginga og raflagnahönnun.

Stikan Teiknistofa ehf - Bygginga og raflagnahönnun. Stikan býður upp á raflagna og lýsingahönnun, mannvirkjahönnun ásamt hönnun og uppsetningu á KNX hússtjórnarkerfum. [email protected]
GSM: 854-1155

Stikan teiknistofa ehf var stofnað sem Valraf ehf árið 2008 Kt650808-2310
Stikan teiknistofa býður upp mannvirkjahönnun, raflagnahönnun, lýsingahönnun ásamt uppsetningu og hönnun á KNX hússtjórnarkerfum. Starfsmenn Stikunnar eru:
Valur Benediktsson byggingafræðingur, raffræðingur og raflagna og lýsingarhönnuður. [email protected]
GSM: 898-0497
Guðmundur Freyr Hansson raffræðingur, raflagnahönnuður.

Hraunholtið á Húsavík að taka á sig mynd.
13/07/2026

Hraunholtið á Húsavík að taka á sig mynd.

Hjúkrunarheimili á Suðurnesjum hafa verið mikið hérna á borðum hjá okkur.  Stikan - Teiknistofa var með raflagna og lýsi...
24/06/2026

Hjúkrunarheimili á Suðurnesjum hafa verið mikið hérna á borðum hjá okkur. Stikan - Teiknistofa var með raflagna og lýsingarhönnun í nýopnuðu heimili að Nesvöllum í Reykjanesbæ.

Í gær var svo formlega tilkynnt um byggingu 90 rýma hjúkrunarheimilis að Keilisbraut 753 -754 á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Aftur var leitað til okkar á Stikunni -Teiknistofu um að hanna rafkerfi og lýsingar í þetta nýja hjúkrunarheimili.

Hönnun er hafin og á að vinnast hratt því stefnt er að því að opna heimilið árið 2028. Það er teiknistofan Glóra sem eru arkitektar að húsinu.

16/03/2026
Eru kynslóðaskipti á bænum og unga fólkinu vantar íbúð?Nýlega kom ungt fólk til okkar sem hafði áhuga á að skoða mögulei...
16/03/2026

Eru kynslóðaskipti á bænum og unga fólkinu vantar íbúð?

Nýlega kom ungt fólk til okkar sem hafði áhuga á að skoða möguleikann á að byggja lítið íbúðarhús í fallegri sveit. Eftir stuttan fund rissaði ég upp þessa hugmynd.

Áætlað er að grind hússins komi tilsniðin frá sögunarmyllu í Noregi.

Húsið er byggt á súlum, sem gerir mögulegt að færa það til ef þörf krefur. Það er hannað með algildri hönnun og getur hentað bæði sem íbúðarhús, í ferðaþjónustu eða sem sumarhús.

Stærð hússins er 73 m² og það inniheldur tvö nokkuð rúmgóð herbergi. Húsið verður hitað upp með gólfhita.

Að utan verður húsið klætt með standandi báruáli. Gluggar verða áltrégluggar og á þakið kemur svart báruál.

Loft verða upptekin í öllu húsinu, en salerni og eldhús eru hugsuð sem „kjarni“ eða eins konar skápur í rýminu. Loftið er því niðurtekið yfir salerninu – sem sést betur á sniðmyndinni.

14/03/2026

Fyrirtækið okkar er til sölu😊

ALLT AÐ GERAST Á ÁRSKÓGSSTRÖNDSplunkunýr aðili í framleiðslu forsmíðaðra húsa. Við félagar fengum í sumar það verkefni a...
11/03/2026

ALLT AÐ GERAST Á ÁRSKÓGSSTRÖND
Splunkunýr aðili í framleiðslu forsmíðaðra húsa. Við félagar fengum í sumar það verkefni að hanna stóra skemmu með stærðarinnar hurð á að Stærri Árskógi á Árskógsströnd í Dalvíkurbyggð.

Í framhaldi fengum við svo það verkefni að hjálpa þeim af stað með hönnun á forsmíðuðum einingarhúsum. Núna er fyrsta húsið á fullu í smíði og við kíkkuðum á þá félaga á Stærri Árskógi í dag.

Þetta er spennandi verkefni og við trúum að þarna séu góðir hlutir að gerast. Húsin geta verið alveg upp í 140m² að stærð og verða flutt hvert á land sem er.

Sjón er sögu ríkari. Fyrsta húsið er 49m² og er enþá til sölu. Það eru renderaðar útlitsmyndir af húsinu ásamt teikningum hérna neðar.

Hagaskógar 3 Núna seinustu vikur höfum við unnið að einbýlishúsi í Hagahverfi í Hörgársveit. Þar á að byggja tveggja hæð...
07/03/2026

Hagaskógar 3 Núna seinustu vikur höfum við unnið að einbýlishúsi í Hagahverfi í Hörgársveit. Þar á að byggja tveggja hæða timburhús með bílskúr. Húsið kemur tilsniðið frá sögunarmyllu í Noregi og verður því allt tilsniðið og númerað upp eins við höfum svo góða reynslu af. Gólf verða þó steypt á milli hæða. Núna erum við að vinna að burðarþoli og lögnum en aðaluppdrættir af þessu húsi eru klárir. Eins og oft hjá okkur þá eru allir gluggar vel stórir og margir gólfsíðir gluggar. Bílskúrsþakið myndar svo svalir fyrir efri hæðina. Þannig eru alveg 71m² svalir á þessu húsi sem verða með snjóbræðslu og ættu að nýtast vel allt árið. Þannig að húsið mun stækka á góðviðrisdögum út á svalirnar. Á svölunum verður pottur og hægt að borða morgunmatinn úti í morgunsólinni.

Einingarhúsaverksmiðja í Litháen sem heitir Restamodular hafði samband við okkur í haust og vildi fá okkur til að hanna ...
02/03/2026

Einingarhúsaverksmiðja í Litháen sem heitir Restamodular hafði samband við okkur í haust og vildi fá okkur til að hanna tvö stór eibýlishús fyrir sig á lóðir í Reykjanesbæ. Um var að ræða 2 stk 280m² einbýlishús upp á tvær hæðir. Húsin eru framleidd sem modularhús í verksmiðjum þeirra í Litháen en er raðað saman klædd að utan á staðnum. Hvort hús kemur í 7 alveg tilbúnum einingum. Þetta er búið að vera smá krefjandi verkefni á milli tveggja landa en nú á dögunum fengum við á Stikunni teikningar af þessum húsum samþykktar og núna getur framleiðsla modulana hafist í Litháen. Það er dótturfélag Restamodular á Íslandi Lava hus sem kemur til með að byggja húsin en við sjáum um alla hönnun. Þeir sem hafa skoðað smáhýsin sem Húsasmiðjan hefur verið að selja undanfarin ár hafa séð hús frá Restamodular en þeir hafa verið að selja frá þeim mikið af allra handa smáhúsum og sumarhúsum.

Það er ekki á hverjum degi sem nýtt hjúkrunarheimili er opnað en það átti sér stað núna á dögunum. Nýtt 80 rýma hjúkruna...
03/02/2026

Það er ekki á hverjum degi sem nýtt hjúkrunarheimili er opnað en það átti sér stað núna á dögunum. Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili var þá opnað að Nesvöllum í Reykjanesbæ. Við Stiku félagar teiknuðum þar raflagnir og lýsingar. THG arkitektar hönnuðu húsið og Ferill verkfræðistofa sá um burð lagnir og loftræsingu. Hrafnista fylgdi okkur eftir í allri hönnun og mun svo reka heimilið.

Húsið er búið mjög fullkomnu hússtýringarkerfi sem stjórnar lýsingu, loftræsingu, hitakerfum. Kerfið fylgist með allri orkunotkun, prófar sjálfvirkt allar brunalokur og neyðarlýsingu. Hönnun þessa skjákerfis sáum við Andor og Stikan en við sáum um að forrita ljósastýringar kerfisins og að hanna raflagnirnar upp fyrir kerfið. Andor sá um að hanna skjákerfið og forrita inn kerfið.

Við óskum öllum íbúum á Reykjanesi til hamingju með stórglæsilegt hjúkrunarheimili.

Address

Baldursnesi 8
Akureyri
600

Telephone

+3548980497

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Stikan Teiknistofa ehf - Bygginga og raflagnahönnun. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Featured

Share