Verkval

Verkval Stíflulosun, hreinsun niðurfalla, rotþróartæming, lagnamyndun, lagnafóðrun, sópun, dælubíl

Þú getur komið í veg fyrir óvæntan kostnað!
26/02/2026

Þú getur komið í veg fyrir óvæntan kostnað!

11/09/2025

Kæru vinir. Á morgun föstudag 12.09. munum við hafa lokað hjá okkur vegna útfarar Jóns Björnssonar. Hægt er að senda tölvupóst á [email protected] vegna verkefna ef nauðsyn ber til.

Kæru vinir í gærkvöldi lést Jón Björnsson, einn af eigendum Verkvals, á Sjúkrahúsi Akureyrar.
28/08/2025

Kæru vinir í gærkvöldi lést Jón Björnsson, einn af eigendum Verkvals, á Sjúkrahúsi Akureyrar.

Smá fréttir frá okkur. Í nóvember sl. keyptum við tvær snjómoksturvélar sem áður voru í eigu Arnars Friðrikssonar sem si...
14/01/2025

Smá fréttir frá okkur. Í nóvember sl. keyptum við tvær snjómoksturvélar sem áður voru í eigu Arnars Friðrikssonar sem sinnt hefur snjómokstri fyrir húsfélög, einkaaðila og fyrirtæki sl. 40 ár. Einnig keyptum við nú í desember sl. sanddreifara til notkunar á bílaplönum. Ef ykkur vantar að láta hálkuverja plön hjá ykkur eða moka snjó þegar hann lætur sjá sig er hægt að hafa samband við okkur í síma 892 3762 eða í gegnum netfangið [email protected]

14/05/2024

Það er mikið að gera hjá Verkval og mikið af spennandi verkefnum og mikil vinna í boði í sumar.
Okkur vantar því að bæta í hópinn sumarstarfsfólki en lágmarkshæfniskröfur eru:

- Skemmtilegheit og áreiðanleiki
- Dugnaður og verkvit
- Bílpróf

Áhugasamir eru hvattir til að fá nánari upplýsingar hjá:
Jónas - 8585588
Gunnar - 8525588
eða senda póst á [email protected]

Tjékkaðu á þessu!

23/04/2024

Fengum þetta fína myndband sent frá honum Nilla starfsmanni Akureyrarbæjar af því þegar við þrifum miðbæinn í síðustu viku

Í vetur keypti Verkval glænýja Scaniu af bestu gerð til að nota við rotþróahreinsun. Búnaður á hana var keyptur  frá Dan...
22/04/2024

Í vetur keypti Verkval glænýja Scaniu af bestu gerð til að nota við rotþróahreinsun. Búnaður á hana var keyptur frá Danmörku og hafa starfsmenn Verkvals unnið að færslu búnaðar á nýja bílinn, með hjálp frá Kletti og frá framleiðanda í Danmörku.
Þessi nýji bíll verður klár í vikunni og mun fara af stað í sumarbyrjun.

Nýr framkvæmdastjóri hjá Verkval. Jónas Halldór Sigurðssonhefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri hjá Verkval og tekur v...
27/03/2024

Nýr framkvæmdastjóri hjá Verkval.

Jónas Halldór Sigurðssonhefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri hjá Verkval og tekur við af Gunnari Rafni Jónssyni sem mun áfram starfa hjá félaginu í öðrum verkefnum og er áfram í eigendahópnum.
Jónas er meðal annars viðskiptalögfræðingur að mennt með ML gráðu í lögfræði, meirapróf og vinnuvélaréttindi.
Jónas hefur þegar hafið störf og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til okkar!

Nýr dælubíllÍ dag kom í hús nýkeyptur dælubíll frá Noregi, af gerðinni Kaiser Eur Mark. Bíllinn er hannaður í Finnlandi ...
29/01/2024

Nýr dælubíll
Í dag kom í hús nýkeyptur dælubíll frá Noregi, af gerðinni Kaiser Eur Mark. Bíllinn er hannaður í Finnlandi fyrir norðurslóða veðurfar og á að geta unnið í okkar mestu frostum.
Undirvagninn er af gerðinni Benz Arocs 3253, árgerð 2018 með háu, vel búnu húsi og bestu þægindum. Bíllinn er búinn 4 öxlum og 2 drifum og nú þegar er búið að ögra honum hvað varðar veður og færð.
Á norðurleið fékk hann að kynnast snjó, hálku og yfir 20 m/s hliðarvindi í hitastigum ofan og neðan frostmarks og stóð sig með prýði.

22/01/2024

Stíflulosun, hreinsun niðurfalla, rotþróartæming, lagnamyndun, lagnafóðrun, sópun, dælubíl

Address

Miðhúsavegur 4
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 08:00 - 18:00
Tuesday 08:00 - 18:00
Wednesday 08:00 - 18:00
Thursday 08:00 - 18:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3548923762

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Verkval posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Verkval:

Featured

Share

Category