Trésmiðjan Akur ehf.

Call Directions Website Contact the business

Trésmiðjan Akur ehf. Trésmiðjan Akur sérhæfir sig í allri almennri smíðavinnu sem og timbureiningahúsum.

TímamótÞað er ekki algengt að fólk vinni alla sína starfsævi hjá sama fyrirtækinu. Það gerði ein samstarfskona okkar í A...
01/07/2026

Tímamót
Það er ekki algengt að fólk vinni alla sína starfsævi hjá sama fyrirtækinu. Það gerði ein samstarfskona okkar í Akri hún Margrét Arnfinnsdóttir, en hún lét af störfum í gær eftir 48 ár og tvo mánuði í starfi fyrir Akur.
Magga hóf störf í byrjun maí árið 1978. Alla tíð vann hún við almenn skrifstofustörf og var launafulltrúi fyrirtækisins.
Við í Akri kveðjum góða samstarfskonu sem hefur sýnt samferðafólki sínu í fyrirtækinu hlýju og alúð. Tryggð hennar við fyrirtækið og stjórnendur í gegnum tíðina er okkur mikils virði.
Samstarfsfólk hennar í Akri óskar henni alls hins besta í framtíðinni og vonum að hún finni skemmtileg viðfangsefni á komandi árum.

Árshátíðarferð starfsfólks Akurs í Gdansk Póllandi..
21/05/2026

Árshátíðarferð starfsfólks Akurs í Gdansk Póllandi..

Starfsmannahús í FíflholtÁ síðasta ári var gerður samningur milli Trésmiðjunnar Akurs og Sorpurðunar Vesturlands þess ef...
18/05/2026

Starfsmannahús í Fíflholt

Á síðasta ári var gerður samningur milli Trésmiðjunnar Akurs og Sorpurðunar Vesturlands þess efnis að Akur byggji starfsmanna- og þjónustuhús fyrir félagið. Smíði hússins hefur staðið yfir í vetur og var það byggt innandyra í verksmiðju Akurs.

Samstarfsaðilar Akurs við byggingu hússins eru;
Borgarverk ehf Borgarnesi – flutningur á húsi
Færni ehf Akranesi – málning og gólfdúkur
Pípó ehf Akranesi – pípulagnir
Vogir og Lagnir ehf Akranesi – raf- og tölvulagnir

Húsið var flutt 7. maí síðast liðinn í Fíflholt og var sett niður til bráðabirgða þar til það verður sett á undirstöður á næstu dögum.

AKURShús – íbúðarhús og frístundahús. Trésmiðjan Akur framleiðir timbureiningahús og afhendir óuppsett í einingum eða up...
09/12/2025

AKURShús – íbúðarhús og frístundahús.

Trésmiðjan Akur framleiðir timbureiningahús og afhendir óuppsett í einingum eða uppsett á byggingarstað. Allt eftir óskum hvers og eins.

Kynntu þér húsbæklinginn okkar á akur.is – Íslensk hönnun og framleiðsla.

Sendu okkur línu á [email protected] og fáðu verðáætlun í húsið þitt.

Frístundahús í BirkihlíðÞað hefur viðrað vel til byggingarvinnu síðustu daga og vikur og í byrjun þessarar viku hófu sta...
05/12/2025

Frístundahús í Birkihlíð

Það hefur viðrað vel til byggingarvinnu síðustu daga og vikur og í byrjun þessarar viku hófu starfsmenn Akurs reisningu á frístundahúsi í landi Kalastaða í Hvalfirði. Frístundasvæðið ber heitið Birkihlíð og er þetta fimmta húsið sem Akur reisir á þessu svæði.

Framkvæmdir hófust í byrjun október síðast liðinn. Þeir verktakar sem vinna að verkinu með Akri eru Borgarverk ehf. í Borgarnesi sem sér um jarðvinnu, Ávalt ehf. á Akranesi sá um undirstöður, Halldór Fannar Halldórsson pípulagningarmeistari á Akranesi sér um pípulagnir og Rafdreifing ehf. í Mosfellsbæ sér um raflagnir.

Húsið sem eru rúmir 60 fermetrar að stærð er hefðbundið að formi og er með risþaki og skyggni framan við stofu og eldhús, það er með litaðri timburklæðningu á útveggjum og eru gluggar og útihurðir með álklæðningu að utan.

09/10/2025

Akur byggir fyrir Sorpurðun Vesturlands

Í síðustu viku undirrituðu Trésmiðjan Akur og Sorpurðun Veturlands samnings þess efnis að Akur byggir nýtt starfsmanna- og þjónustuhús, sem verður sett upp í Fíflholtum á Mýrum. Nýja húsið verður sett á sama stað og núverandi þjónustuhús stendur, en það var sett niður til bráðabirgða árið 1999. Áætlað er að afhenda hið nýja hús í lok maí á næsta ári.

Fyrir nokkrum dögum kláruðu Akursmenn uppsetningu og frágang að utan á glæsilegu húsi sem staðsett er í Hegranesi í Skag...
27/05/2025

Fyrir nokkrum dögum kláruðu Akursmenn uppsetningu og frágang að utan á glæsilegu húsi sem staðsett er í Hegranesi í Skagafirði. Húsið er klætt að utan með standandi timburklæðningu og láréttri báruálklæðningu.

Samstarfsaðilar Akurs við framkvæmdina voru:

Nordan ísland ehf. Gylfaflöt 3 Reykjavík. Gluggar og útihurðir frá þeim eru úr timbri með álklæðningu að utan.

GSG Þaklagnir Smiðshöfða 19 Reykjavík. Á þaki er PVC þakdúkur sem GSG Þaklagnir sá um að setja niður og ganga frá.

Á næstu vikum mun Akur ljúka við frágang að innan fyrir kaupendur hússins.

Akurshús í Skagafjörðinn.Mánudaginn 5. maí s.l. var lagt af stað með timbureiningahús frá Akri. Húsið sem er hannað og t...
06/05/2025

Akurshús í Skagafjörðinn.

Mánudaginn 5. maí s.l. var lagt af stað með timbureiningahús frá Akri. Húsið sem er hannað og teiknað sérstaklega fyrir kaupendur er um 124 m2 að stærð á einni hæð og mun rísa í Hegranesi í Skagafirði. Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi sá um að flytja húseiningar og efni fyrir okkur á byggingarstað.

Nú eru vaskir menn frá Akri að reisa húsið sem mun á endanum verða skilað til eigenda tilbúnu undir tréverk síðar í sumar.

- Brot úr 65 ára sögu –Árið er 2008. Í byrjun ársins hófst smíði á sumarhúsi hér við verksmiðju Akurs. Húsið er rúmir 70...
15/01/2025

- Brot úr 65 ára sögu –
Árið er 2008. Í byrjun ársins hófst smíði á sumarhúsi hér við verksmiðju Akurs. Húsið er rúmir 70 m2 að grunnfleti, með svefnlofti yfir hluta hússins. Í júlí sama ár var húsið flutt á undirstöður í landi Barðastaða á Snæfellsnesi.

Flutningurinn gekk að óskum og sá Bifreiðastöð ÞÞÞ um hann. Skóflan á Akranesi sá um hífingu á húsinu.

Gleðileg jólStarfsfólk Trésmiðjunnar Akurs óskar viðskiptavinum sínum og samstarfsfólki gleðilegrar jólahátíðar og farsæ...
23/12/2024

Gleðileg jól

Starfsfólk Trésmiðjunnar Akurs óskar viðskiptavinum sínum og samstarfsfólki gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.

Það verður lokað hjá okkur milli jóla og nýárs og fram í janúar. Opnum aftur mánudaginn 6. janúar.

Address

Akranes
300

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

+3544306600

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Trésmiðjan Akur ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Trésmiðjan Akur ehf.:

Shortcuts

Share

Category