Harðargarðar

Harðargarðar Harðargarðar ehf. er skrúðgarðyrkjufélag sem var stofnað árið 2020 af Herði Helga Hreiðarssyni.

09/04/2026

Leyfðu garðinum þínum að “sofa út”!

Nú er vor í lofti og eflaust marga sem klæjar í pu***na að taka til hendinni í garðinum.

Hér er einföld aðferð við að taka til í garðinum en leyfa honum að “sofa út”.

->Laufin sem féllu í haust eru til margs nytsamleg og algjör synd að fjarlægja þau úr garðinum.

Í stað þess að raka lauf í poka og fjarlægja úr garðinum er gott að einfaldlega að raka þau inn í beð (breiða yfir beðin) þar sem þau brotna niður og breytast í næringaríkan, heilbrigðan jarðveg. Sú aðferð getur einnig haldið aftur af spírun illgresis.

Í laufunum leynast nauðsynleg næringarefni, jarðvegsdýr sem eru mikilvæg fyrir heilbrigðan jarðveg og frjóberar sem enn liggja í dvala. Lauflag í beðum hjálpar einnig til við að halda jöfnu hitastigi á jarðveginum og rótum plantna.

Það skal þó varast að hrúga efni upp að rótarhálsi trjáa og runna.

Fyrir lengra komna er líka gott að koma upp svokallaðri laufamoltu “leaf mulch”.

Þannig tekur þú skref í átt að því að loka hringrás garðsins, spara þér sporin, vera umhverfisvænni og síðast en ekki síst spara pening.

Garðurinn mun þakka þér.

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Harðargarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Featured

Share