Heimaverk ehf

Heimaverk ehf Heimaverk ehf
Flísalagnir-Hönnun-Parketlagnir-Pípulagnir-Raflagnir-Múrverk

Heildarendurbætur í Stykkishólmi. 🔨✨Heimaverk tók þetta hús algjörlega í gegn — frá A–Ö.Allt var rifið út og rýmin byggð...
12/09/2026

Heildarendurbætur í Stykkishólmi. 🔨✨

Heimaverk tók þetta hús algjörlega í gegn — frá A–Ö.
Allt var rifið út og rýmin byggð upp að nýju. Lagðar voru parketflísar á alrými og í herbergi, gólfhiti og ný hitastýring sett í öll gólf, nýjar hurðir settar upp og húsið málað í heild sinni að innan.
Rafmagn var yfirfarið, skipt um tengla og rofa og gengið frá raflögnum eftir þörfum. Einnig var nýtt eldhús sett upp og frágengið, þannig að allt heimilið fékk algjöra endurnýjun frá grunni.

Baðherbergið fékk sömuleiðis algjöra yfirhalningu og þar voru lagðar glæsilegar hvítar Terrazzo-flísar frá Flísabúðinni sem gefa rýminu bjart, fágað og tímalaust yfirbragð.

Heildarverkið — frá niðurrifi og uppbyggingu til fullkláraðs heimilis — tók aðeins tæpa 2 mánuði

Stórt verkefni, þétt verkáætlun og glæsileg útkoma sem við hjá Heimaverk erum virkilega stolt af. 👌🤩

Einstök baðherbergi í Mosfellsbæ. Heimaverk sá um útfærslu á glæsilegu baðherbergi og gestabaðherbergi þar sem klassíska...
12/09/2026

Einstök baðherbergi í Mosfellsbæ.

Heimaverk sá um útfærslu á glæsilegu baðherbergi og gestabaðherbergi þar sem klassískar flísar og litir fá að njóta sín til fulls.

Samspil marmaraflísanna og djúpgrænu veggflísanna skapa einstaklega fallegt jafnvægi, klassískur marmarinn fær nútímalegt mótvægi í græna litnum og saman gefa efnin rýmunum einstakt útlit, hlýju og fágað yfirbragð.

Nákvæmur frágangur og vandað handverk. Flísarnar eru úr Flísabúðinni www.flis.is

Við hjá Heimaverk erum virkilega stoltir af útkomunni. 🤩🤩🤩🤩

Bari — nýtt yfirbragð, Heimaverk sá um flísalögn og framkvæmdir við endurbætur á veitingastaðnum Bari, þar sem áhersla v...
12/09/2026

Bari — nýtt yfirbragð,

Heimaverk sá um flísalögn og framkvæmdir við endurbætur á veitingastaðnum Bari, þar sem áhersla var lögð á vandað handverk og nákvæman frágang.
Við klæddum allan barinn og lögðum gólf með Topcer-flísum frá Flísabúðinni. Flísarnar spila stórt hlutverk í heildaryfirbragði staðarins og gefa rýminu einstakan karakter.
Hönnun staðarins var í höndum Einars Guðmundssonar og Arons Freys Heimissonar hjá Mikado, útkoman er glæsileg heild þar sem efnisval, litir og smáatriði vinna saman.
Við hjá Heimaverki erum stoltir af því að hafa tekið þátt í þessu flotta verkefni og þökkum Bari fyrir traustið
Topcer-flísar — Flísabúðin www.topcer.com

Þetta baðherbergi ōðlaðist nýtt líf. Fjarlægðum allt gamalt og settum nýjar 60x60 flísar Queens Manhattan flísar ásamt 6...
02/03/2026

Þetta baðherbergi ōðlaðist nýtt líf. Fjarlægðum allt gamalt og settum nýjar 60x60 flísar Queens Manhattan flísar ásamt 60x120 Celio Vein Smooth www.flisabudin.is sem skrautflís á bakvið innréttinguna, innréttingin er úr Ikea, blōndunartæki úr www.byko.is sturtuglerið og spegillinn er frá www.ispan.is
fyrir og eftir myndir🤩
www.heimaverk.is

www.heimaverk.is
23/02/2026

www.heimaverk.is

Heimverk flísalögðu og parketlögðu allt húsið okkar á mettíma, Völdu fyrir okkur flísar og sáu um allt sem þurfti. Vönduð vinnubrögð, kurteisir og frábærir starfsmenn. Heimaverk fá hæstu mōgulega einkun frá okkur.

Við óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, takk fyrir viðskiptin á árinu🎄🎀🎄
24/12/2025

Við óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, takk fyrir viðskiptin á árinu🎄🎀🎄

Fyrir og eftir myndir - Einstōk endurnýjun á glæsilegu baðherbergi í Grafarvogi sem komið var til ára sinna. Allt gamalt...
26/11/2025

Fyrir og eftir myndir - Einstōk endurnýjun á glæsilegu baðherbergi í Grafarvogi sem komið var til ára sinna. Allt gamalt rifið út og settar bjartar flísar á gólf og veggi 60x60 Aventino Cross á gólf með mattri áferð og 60x120 Aventino vein smooth á veggi með silkisléttri áferð. Flís ársins 2025 sem fæst í www.flisabudin.is. Settum nýtt baðkar og walk in sturtu með sturtugleri frá www.ispan.is sem er reyklitað.
www.heimaverk.is

Fyrir og eftir myndir - 2 glæsileg baðherbergi í sama húsi, skemmtilegar litablōndur 60x60 Terrazzo white flísar á gólfi...
25/11/2025

Fyrir og eftir myndir - 2 glæsileg baðherbergi í sama húsi, skemmtilegar litablōndur 60x60 Terrazzo white flísar á gólfi og veggjum ásamt memory moos green flísum á aðal baðherbergi og home navy brick bláar flísar á gestabaðherbergi www.flisabudin.is Við færðum vegginn framar og létum sníða Ikea skápa og hillur inn í vegginn. Speglar og gler er úr www.ispan.is Heildar útkoman er einstaklega flott👌🏻😊
www.heimaverk.is

Address

Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heimaverk ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Heimaverk ehf:

Shortcuts

Featured

Share

Category