06/10/2026
Við hjá Stíflutækni erum afar stolt af því að hafa verið valin til samstarfs við Veitur um hreinsun og ástandsgreiningu fráveitulagna ásamt þjónustu dælu- og hreinsistöðva. 💪
Samningurinn er stórt og mikilvægt skref fyrir okkur og staðfesting á þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað hjá fyrirtækinu undanfarin ár.
Við höfum lagt mikla áherslu á að fjárfesta í öflugum tækjabúnaði, nýrri tækni og síðast en ekki síst frábæru starfsfólki. Það er því sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að nýta þá reynslu og þekkingu í langtímasamstarfi við Veitur.
Við hlökkum mikið til verkefnanna framundan og þess að halda áfram að byggja upp öfluga þjónustu með gæði, öryggi og fagmennsku í fyrirrúmi. 👷♂️🚛
Við viljum sérstaklega þakka okkar frábæra starfsfólki – án ykkar væri þetta einfaldlega ekki hægt.
👉 Nánar um samninginn í frétt Veitna hér fyrir neðan.